Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga þegar kemur að innlögn dýra
Þegar dýr koma í aðgerðir sem þarfnast svæfinga er reglan sú að komið er með dýrið í innlögn við opnun Dýralæknamiðstöðvarinnar og dýrið skilið eftir hjá okkur. Við opnum kl. 7:50 alla virka daga og tökum við skráðum innlagnarsjúklingum til kl. 8:30 (og í einstaka tilfellum seinna). Hundar og kettir sem þarfnast svæfingar þurfa að fasta frá miðnætti (mega drekka vatn) kvöldinu áður. Nagdýr og kanínur mega EKKI fasta og þurfa helst að koma með mat/hey í innlögn.
Sami tími gildir um önnur dýr í innlögn sem ekki þarfnast svæfingar á meðan innlögn stendur. Hafa skal í huga að svæfingar geta verið áhættusamar og því er algengt að settur sé upp æðaleggur hjá dýrunum og þau þá oftast rökuð á framfæti/fótum til að hægt sé að sótthreinsa svæðið. Dýr eru ekki send heim frá okkur fyrr en þau eru vöknuð og komin til meðvitundar.
Hér að neðan má finna eyðublað sem þarf að fylla út fyrir innlögn. Einnig er hægt að fá blaðið til útfyllingar hjá okkur við mætingu.
Innlögn dýra er hugsuð þannig að dýr sem þurfa aðgerðir, stórar sem smáar, eða fara í einhverskonar rannsóknir, fái bestu mögulegu meðhöndlun og eins mikinn tíma og hægt er að bjóða þeim. Viðtalstíma við dýralækna þarf að panta og eru þeir allir eftir hádegi þegar aðgerðum og rannsóknum dagsins er lokið og dýrin eru í vöknun með aðstoðarfólki sem sjá til þess að þau fái vatn, mat og umönnun eftir því sem við á og komist til að gera þarfir sínar.

Leiga á búrum
Fyrir þá sem ekki eiga búr fyrir kettina sína er hægt að leigja hjá okkur búr fyrir ferðina til og frá Dýralæknamiðstöðinni. Hægt er að koma og sækja búr til okkar sem greitt er fyrir og fæst 80% endurgreiðsla þegar búrinu er skilað. Sé búrinu skilað eftir viku frá innlögn dýrsins fæst 50% endurgreiðsla á leiguverðinu.