Ófrjósemisaðgerð á tík
Daginn fyrir aðgerð er mikilvægt að tíkin sé fastandi frá miðnætti. Hún má drekka vatn en ekki borða. Ef hún er á lyfjum er mikilvægt að hún taki þau, nema dýralæknir hafi tekið annað fram. Best að er að hún sé búinn að fara í göngutúr til að losa um þvag og hægðir áður en hún mætir. Við komu fyllir eigandi út innlagnarblað þar sem við fáum helstu upplýsingar um hundinn.
Aðgerðin felst í því að eggjastokkar og/eða leg er tekið gegnum kviðarholsskurð við nafla. Saumarnir eru faldir í húðinni og eyðast sjálfir.
Fyrsta daginn eftir aðgerðina er mikilvægt að halda hita á líkamanum vegna þess að svæfingarlyfin geta valdið því að hitastýring líkamans fer úr skorðum. Það getur tekið einn dag að jafna sig eftir svæfinguna sjálfa. Leyfið tíkinni að hvíla sig einsog hún þarf undir eftirliti. Fylgist með því að hún borði og drekki um kvöldið. Tíkin þarf að vera með skerm eða í heilgalla í 10-14 daga, dag og nótt. Það er mjög mikilvægt að hún sleiki ekki sárið því það getur valdið sýkingu.
Eftir aðgerðina er tíkin meðhöndluð með verkjalyfjum skv. leiðbeiningum sem fylgja. Mikilvægt er að gefa verkjalyfin. Þau eru bólgueyðandi og verkjastillandi.
Mikilvægt er að fylgjast með skurðsári daglega. Gott er að hafa auga með ef óeðlileg blæðing er til staðar, vond lykt er af sárinu eða ef tíkin sýnir einkenni um slappleika eða lystarleysi. Ef einkenni sem þessi koma upp er mikilvægt að hafa samband við dýralækni.
Fyrstu dagana er gott að hafa ró heima fyrir og fara aðeins í stutta göngutúra í taum. Eftir 14 daga má fara að lengja göngutúrana smám saman.
Ráðlagt er að fylgjast með þyngd tíkarinnar eftir aðgerð en grunnbrennsla minnkar eftir að eggjastokkar hafa verið fjarlægðir.
Ef eitthvað kemur upp á eftir aðgerðina eða þið hafið einhverjar spurningar er hægt að hafa samband við okkur í síma 544-4544 eða með því að senda tölvupóst á dyrin@dyrin.is. Utan opnunartíma eru dýralæknar með neyðarvakt í síma 530-4888. Athugið að dýraspítalar skiptast á að vera með neyðarvaktina.
Gangi ykkur vel og góðan bata.